Um Golden Locks

Um Golden Locks

Ég heiti Jóhanna Guðrún og er eigandi og stofnandi Golden Lock. Ég er hársnyrtimeistari og hef í mörg ár sérhæft mig í hárlengingum ásamt því að sinna konum sem glíma við hármissi og hárþynningu.

Í dag starfa ég á hársnyrtistofunni Nærveru í Mosfellsbæ, þar sem hægt er að bóka tíma hjá mér í gegnum Noona.

Golden Lock varð til út frá minni eigin reynslu

Árið 2023 missti ég um 80% af hárinu mínu vegna langvarandi streitu og járnskorts. Í um tvö ár þurfti ég að nota hárkollur og hártoppa.

Þetta hafði miklu meiri áhrif á mig en ég hafði gert mér grein fyrir að hármissir gæti haft. Mér fannst ég ein í heiminum með þetta vandamál og ég skammaðist mín fyrir það.

Ég prófaði nánast allt sem mér datt í hug til að hjálpa hárinu mínu. Í því ferli fór ég að kafa mun dýpra í hárvöxt, hármissi og ekki síst það hvernig daglegar venjur okkar hafa áhrif á hárið.

Ég áttaði mig á því að það snýst ekki alltaf um hvaða efni eða vörur við setjum í hárið. Það skiptir líka gríðarlega miklu máli hvernig við komum fram við það.

Hvernig þvoum við og þurrkum hárið?
Notum við of mikinn hita?
Hvernig burstum við það?
Og hvernig förum við með hárið á meðan við sofum?

Þetta eru hlutir sem við hugsum kannski ekki mikið út í dagsdaglega, en geta skipt miklu máli þegar markmiðið er að viðhalda sterku og heilbrigðu hári.

Oft heyri ég konur segja: „Hárið mitt vex bara ekki.“ En hárið vex — munurinn getur meðal annars legið í því hversu mikið af lengdinni nær að haldast áður en hárið slitnar eða brotnar.

Frá hárlengingum yfir í Golden Lock

Ég hef unnið með hárlengingar í mörg ár, en árið 2021 hófst vegferðin mín við að finna eigin framleiðslu og byggja upp mitt eigið vörumerki.

Það ferli hefur tekið mörg ár. Ég hef prófað mismunandi framleiðendur, hár og vörur þar til ég fann þau gæði sem ég sjálf vil standa á bak við.

Vegna vinnu minnar með konum sem glíma við hármissi og vegna minnar eigin reynslu langaði mig þó að Golden Lock yrði meira en bara hárlengingar.

Ég vildi líka bjóða upp á vörur sem hjálpa okkur að hugsa betur um hárið sem við höfum.

Þegar hárið mitt fór loksins að vaxa aftur var það mjög þunnt, viðkvæmt og brotnaði auðveldlega. Ég fór því að skoða sérstaklega hvað gæti verið að valda óþarfa sliti í daglegu lífi.

Eitt af því sem kom mér mest á óvart var hversu mikil áhrif núningur á nóttunni getur haft á viðkvæmt hár. Ég ákvað því að prófa að sofa með satínhúfu — og munurinn á mínu hári kom mér ótrúlega á óvart.

Hárið fór loksins að halda lengdinni betur og með tímanum varð það bæði lengra og fyllra.

6 mánuðir á milli mynda 

Þessi reynsla breytti algjörlega því hvernig ég hugsa um hárumhirðu.

Og þannig fæddist Golden Lock.

Netverslun byggð á faglegri reynslu minni sem hársnyrtimeistari, margra ára vinnu með hárlengingar og hármissi — en líka minni eigin reynslu af því að missa hárið og byggja það upp aftur.

Við byrjum smátt, með vandlega völdum vörum sem ég sjálf nota og get staðið á bak við.

Og hver veit hvert Golden Lock leiðir okkur næst. 🤎